Ákveðið hefur verið að varðveita bein steypireyðarinnar sem rak á land nýverið við eyðibýlið Ásbúðir á Skaga.
Tillaga umhverfisráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra þess efnis var samþykkt á fundi ríkisstjórnarinnar í gær og verður tveimur milljónum króna varið til að ná beinagrind hvalsins og verka hana til geymslu hjá Náttúrufræðistofnun Íslands.
Hvalreki sem þessi er sjaldgæfur við [...]
Posts under ‘Fréttir’
Bein steypireyðar varðveitt
Fuglaskoðun og flækingsfuglafréttir
Það er ekki laust við að rómantíkin svífi yfir vötnum þessa dagana enda vor í lofti. Víða sést til fugla af hinum ýmsu tegundum í hefðbundum vorverkum sem felast að mestu í því að sýna sig fyrir hinu kyninu, undirbúa hreiðurgerð og landamæravörslu. Flest allir farfuglarnir eru komnir til landsins og vantar bara óðinshana í [...]
Varp er hafið
Það hefur sjálfsagt ekki farið fram hjá neinum undanfarna daga að sumarið er komið. Hitamælirinn sýnir rautt, grasið er byrjað að grænka, hunangsflugurnar eru komnar á kreik og fuglasöngur ómar frá morgni til kvölds.
Starfsmaður náttúrustofunar hefur verið víða á ferðinni undanfarnar vikur við helsingjatalninga en talið er á ca 5 daga fresti í innanverðum Skagafirði [...]