Náttúrustofa Norðurlands vestra

Bein steypireyðar varðveitt
Ákveðið hefur verið að varðveita bein steypireyðarinnar sem rak á land nýverið við eyðibýlið Ásbúðir á Skaga.

Steypireyður sem rak á land á Skaga nýverið. Myndin er af vef Umhverfisráðuneytisins og er eftir Þorvald Björnsson

Tillaga umhverfisráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra þess efnis var samþykkt á fundi ríkisstjórnarinnar í gær og verður tveimur milljónum króna varið til að ná beinagrind hvalsins og verka hana til geymslu hjá Náttúrufræðistofnun Íslands.

Hvalreki sem þessi er sjaldgæfur við strendur Íslands en Steypireyður er stærsta þekkta dýr jarðar og alfriðað frá árinu 1966.

Hér fyrir neðan er fróðlegur tengill á myndband sem sýnir hvernig bein steypireyðar eru sett saman í náttúrugripasafni í Kanada.

Beinagrind steypireyðar sett saman

Frekari fróðleik um steypireyði er að finna á vísindavef Háskóla Íslands.

Hvað eru margir steypireyðar til í heiminum?

Hvaða dýr étur mest?

Fuglaskoðun og flækingsfuglafréttir
Kría

Það er ekki laust við að rómantíkin svífi yfir vötnum þessa dagana enda vor í lofti. Víða sést til fugla af hinum ýmsu tegundum í hefðbundum vorverkum sem felast að mestu í því að sýna sig fyrir hinu kyninu, undirbúa hreiðurgerð og landamæravörslu. Flest allir farfuglarnir eru komnir til landsins og vantar bara óðinshana í Skagafjörðinn.

Aðstæður til fuglaskoðunar eru með besta móti þessa dagana.  Vaðfuglar sjást víða í hópum á leirum og öðrum svæðum sem henta til fæðuöflunar og andapör eru víða í skurðum og smátjörnum við vegi. Andapörum hefur jafnframt fjölgað á vötnum. Tiltölulega auðvelt er að greina endur til tegundar á þessum árstíma þar sem pörin eru saman og steggirnir áberandi í varpbúningi. Fer nú að styttast í að fyrstu kollurnar hefji varp. Við höfnina hefur verið hægt að sjá ýmsar máfategundir, ritu, æðarfugl, hávellu og teistu seinnustu daga. Þá er krían orðin áberandi yfir Borgarsandinum og við Garðsvatn þegar hún flýgur til hafs til fæðuöflunar.

Brandönd á flugi

Nemendur í ferðamálafræði við Háskólann á Hólum voru í vettvangsferð um innanverðann Skagafjörð síðastliðin sunnudag og fékk starfsmaður náttúrustofunar að fljóta með. Sáust hátt í 40 tegundir fugla, bæði land og sjófuglar auk þess sem einn hvalur skaut upp kollinum. Var um smáhveli að ræða, líklegast hnýðing, sem sást skammt frá landi við Sauðárkrók.

Ýmsir flækingsfuglar hafa einnig verið að sjást seinnustu daga. Þannig sáust kanadagæs og margæs með helsingjum síðastliðin föstudag í innanverðum Skagafirði auk þess sem brandandarkolla hefur sést í nágrenni Sauðárkróks. Fréttir bárust einnig af vepju í Fljótunum.

Helsingjar sjást enn á túnum sem og heiðargæsir. Í seinnustu frétt var talað um að nú ætti fuglunum að fara að fækka, miðað við reynslu seinnustu ára, en greinilegt er að þeir hafi ekki lesið þá frétt því þeim fjölgaði milli talninga. Þann 7. maí sáust því yfir 20 þúsund fuglar og hafði þeim fjölgað um  ca 1500 frá 2. maí. Næsta talning er ráðgerð 12. maí og verður forvitnilegt að sjá hvaða breytingar hafi átt sér stað á fjölda fuglana.

Margæs með helsingjum

Varp er hafið
Álft á hreiðri

Það hefur sjálfsagt ekki farið fram hjá neinum undanfarna daga að sumarið er komið. Hitamælirinn sýnir rautt, grasið er byrjað að grænka, hunangsflugurnar eru komnar á kreik og fuglasöngur ómar frá morgni til kvölds.

Starfsmaður náttúrustofunar hefur verið víða á ferðinni undanfarnar vikur við helsingja­talninga en talið er á ca 5 daga fresti í innanverðum Skagafirði og í Hjaltadalnum. Hefur hann því haft gott tækifæri til að skoða þær breytingar sem orðið hafa á fuglalífi svæðisins að undanförnu.

Heiðlóum og stelkum hefur farið ört fjölgandi seinnustu daga auk þess sem víða heyrist í hneggjandi hrossagaukum. Hópar af jaðrakönum hafa jafnframt sést víða.

Fyrstu álftirnar eru lagstar á og ættu ungar úr þeim hreiðrum að líta dagsins ljós um mánaðarmótin maí/júní. Rjúpnakarrar eru komnir á varpstöðvar sínar og farnir að verja óðöl sín af hörku. Eru þeir vel sýnilegir þessa dagana, snemma á morgnana og á kvöldin, þar sem þeir hafa komið sér fyrir á girðinga­staurum og öðrum stöðum þar sem útsýnið er gott svo þeir hafi góða yfirsýn yfir sín svæði. Skera þeir sig vel úr landslaginu enda enn í hvítum vetrarbúningi.

Heiðargæsir og grágæsir eru enn víða á túnum  en fer fækkandi. Helsingjum fjölgaði jafnt og þétt eftir því sem leið á aprílmánuðinn en þann 2. maí sáust 18.621 fuglar. Næstu daga kemur þeim til með að fækka ört og ættu flestir fuglarnir að hafa yfirgefið landið um miðjan maí.

Krían er komin til landsins og er hún farin dreifast um landið. Er hún meðal annars komin í Eyjafjörðinn en við á náttúrustofuni höfum en engar fréttir fengið af henni hér í Skagafirði og Húnavatnssýslunum. Væri gaman að fá fréttir af komutíma hennar hingað á norðurlandi vestra.

Fuglafréttir
Farfuglarnir hafa verið að flykkjast til landsins seinustu daga og er orðið vorlegt um að lítast í Skagafirði. Hópar af álftum, grágæsum, heiðargæsum og helsingjum er orðin algeng sjón á túnum og ökrum bænda. Á vötnunum er einnig farið að kvikna líf en varpfuglar flykkjast á varpstöðvar sínar þessa dagana eftir að ísa leysti.

Þann 13. apríl fór starfsmaður náttúrustofunar í vettvangsferð um innanverðan Skagafjörð og Hjaltadal til að svipast um eftir fuglum. Álftir voru víða komnar á óðöl sín auk þess sem stokkendur, rauðhöfðar, skúfendur og toppendur eru farnar að flytja sig yfir á vötnin. Flórgoðar sáust jafnframt á einu vatninu. Hettumáfar og stormáfar sáust víða á áreyrum og ökrum auk þess sem sílamáfar sáust á flugi. Þá er nokkuð síðan fýllinn settist upp. Heiðlóuhópur flögraði um Langholtið og tjaldapar spókaði sig um eyrar Héraðsvatna í Blönduhlíðinni. Þá fréttist af haferni á flugi yfir Flatatungu og Silfrastaði þennan sama dag.

Á sama tíma fóru fram talningar á helsingjum. Sáust yfir 5 þúsund fuglar í innanverðum Skagafirði og Hjaltadal. Þegar mest var vorið 2009 sáust hátt í 21 þúsund fuglar á sama svæði þann 25. apríl. Fuglunum á því eftir að fjölga ört næstu daga. Kemur náttúrustofan til með að fylgjast með fjölda helsingja í innanverðum Skagafirði reglulega yfir þann tíma sem þeir stoppa.

Húnvetnsk náttúra 2010
Fræðsludagur um náttúrufar Húnavatnssýslna verður haldinn á Gauksmýri á vegum Náttúrustofu Norðurlands vestra og Selaseturs Íslands laugardaginn 10. apríl næstkomandi.

Skúli Þórðarson sveitarstjóri Húnaþings vestra mun setja fræðsludaginn og Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra mun að því loknu flytja gestum ávarp. Í kjölfarið hefst fyrirlestraröð sem mun standa yfir daginn. Þar verður komið víða við á ýmsum sviðum er lúta að náttúrufari Húnvatnssýslna.

Fyrirlestrar verða stuttir (15 mín. hver) og verður kaffisopinn aldrei langt undan.

Fyrirlestrar verða haldnir að Gauksmýri í Línakradal í Húnaþingi vestra. Að fyrirlestrahaldi loknu verður boðið upp á veitingar í boði Selaseturs Íslands og Náttúrustofu Norðurlands vestra í húsnæði Selaseturs Íslands Brekkugötu 2, Hvammstanga og fimm ára afmælis Selasetursins og 10 ára afmæli Náttúrustofu Norðurlands vestra verður fagnað.

Formleg dagskrá fræðsludagsins hefst kl. 9:30 og lýkur kl. 17:00

Athugið að þátttakendum verður boðið upp á súpu í matarhléi þeim að kostnaðarlausu. Við viljum biðja þá sem það vilja þiggja að senda tilkynningu á netfangið steini@nnv.is eða hringja í síma 453-7999.

Viðburðinn styrkja sveitarfélög í Húnavatnssýslum, SSNV, Vörumiðlun,  Léttitækni, Sláturhús SKVH, Landsvirkjun og Vaxtarsamningur Norðurlands vestra.

Dagskráin

Ágripahefti (pdf skjal, 8 MB)

Fræðsluerindi náttúrustofanna þann 25. mars
Fimmtudaginn 25. mars n.k. flytur Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir líffræðingur á Rannsóknarsetri Háskóla Íslands á Vestfjörðum erindi sitt:

„Uppeldisstöðvar þorskseiða“

Á Sauðárkróki má fylgjast með erindinu í fjarfundarherbergi Farskóla Norðurlands vestra við Faxatorg.

Næsta fræðsluerindi kemur svo frá Náttúrustofu Reykjaness fimmtudaginn 29. apríl 2010.

Kynningarveggspjald erindis

Jarðminjagarðar á Íslandi – Eldfjallagarður á Reykjanesskaga
Miðvikudaginn 24. mars  næstkomandi verður haldið málþing um Jarðminjagarða (Geopark) á Íslandi í  Salnum, Kópavogi.

Að málþinginu standa  Jarðfræðafélag Íslands, Náttúrustofa Suðurlands, Náttúrustofa  Norðurlands vestra, Náttúrustofa Reykjaness, Náttúrufræðistofa Kópavogs,  Umhverfisstofnun  og Náttúrufræðistofnun Íslands.

Umhverfisráðherra,  Svandís Svavarsdóttir og Óskar Bergsson, formaður Borgarráðs ávarpa  þingið. Að því loknu koma ellefu erindi og er dagskráin sem hér segir:

Fundarstjóri:          Hilmar J. Malmquist, forstöðumaður Náttúrufræðistofu Kópavogs

12:30 – 12:40         Setning: Þorsteinn Sæmundsson, formaður Jarðfræðafélags Íslands og forstöðumaður Náttúrustofu Norðurlands vestra

12:40 – 12:50         Ávarp: Svandís Svavarsdóttir, Umhverfisráðherra

12:50 – 13:00         Ávarp: Óskar Bergsson, formaður Borgarráðs

13:00 – 13:20         Eldfjallagarður og jarðminjar á Reykjanesskaga: Helgi Páll Jónsson, Náttúrustofu Norðurlands vestra

13:20 – 13:40         Jarðfræði Íslands, sérstaða og tengsl við heimsmynd jarðfræðinnar: Ármann Höskuldsson, Jarðvísindastofnun Háskólans

13:40 – 14:00         Hvers virði er landslag?: Hreggviður Norðdahl, Jarðvísindastofnun Háskólans

14:00 – 14:20         Hvað er jarðminjagarður?: Lovísa Ásbjörnsdóttir, Umhverfisstofnun

14:20 – 14:40         Frá Þingvöllum til Reykjaness: Eldvirknigarður á Suðvesturlandi: Ari Trausti Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur

14:40 – 15:10         Kaffi

15:10 – 15:30         Eldfjallagarður á Reykjanesskaga: Ólafur Örn Ólafsson, bæjarstjóri Grindavík

15:30 – 15:50         Aðdráttarafl jarðfræðinnar – hugmyndir um geopark á Íslandi: Rögnvaldur Ólafsson, Stofnun fræðasetra Háskóla Íslands

15:50 – 16:10         Jarðminjagarðar og ferðaþjónusta: Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri

16:10 – 16:30         Jarðminjagarður á Suðurlandi: Sveinn Pálsson, sveitarstjóri í VÍk

16:30 – 16:50         Frá Háleyjabungu að Hafnabergi: Jarðminjar, orka, náttúra: Kristján Pálsson, formaður Ferðamálasamtaka Suðurnesja

16:50 – 17:10         Samband jarðfræðilegrar og líffræðilegrar fjölbreytni á Íslandi: Skúli Skúlason, Rektor Háskólans á Hólum

17:10 – 17:20         Lokaorð: Ingvar Atli Sigurðsson, forstöðumaður Náttúrustofu Suðurlands

Aðgangur ókeypis. Þátttaka tilkynnist á netfangið steini@nnv.is fyrir 22. mars

Dagskráin á pdf formi.

Fræðsluerindi náttúrustofa 25. febrúar
Fimmtudaginn 25. febrúar n.k. kl. 12:15-12:45 mun Ingvar Atli Sigurðsson, jarðfræðingur á Náttúrustofu Suðurlands flytja erindi sitt:

„Hnyðlingar í íslenskum gosmyndunum“

Næsta erindi kemur frá Náttúrustofu Reykjaness, fimmtudaginn 25. mars 2010.

Á Sauðárkróki er hægt að hlýða á erindið í fjarfundarherbergi Farskóla Norðurlands vestra við Faxatorg.

Þistilfjarðarbirnan
Þistilfjarðarbirnan sem skotin var þann 27. janúar 2010 var flegin þann 28. janúar síðastliðin og kom starfsfólk Náttúrustofu Norðurlands vestra að því verki ásamt Haraldi Ólafssyni og Sigurði Guðmundssyni hamskerum og Karli Bjarnasyni sútara. Sama kvöld var skrokkur birnunar fluttur suður til krufningar. Fyrstu niðurstöður krufningarinnar liggja nú fyrir og hefur Karl Skírnisson dýrafræðingur á Tilraunastöðinni á Keldum sent frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu

Fréttatilkynning frá Karli Skírnissyni

Tennur birnunnar voru heillegar ef undan er skilin fyrsta framtönnin í efra gómi sem hafði brotnað. Ljósmyndina tók Karl Skírnisson.

Hvítabjörn var felldur skammt frá Óslandi í Þistilfirði 27. janúar 2010. Eftir að hafa tekið feldinn af dýrinu á Sauðárkróki var björninn fluttur til Reykjavíkur. Samkvæmt beiðni frá Náttúrufræðistofnun Íslands krufði Karl Skírnisson dýrafræðingur á Tilraunastöðinni á Keldum björninn ásamt þeim Ólöfu Guðrúnu Sigurðardóttur, meinafræðingi á Keldum og Þorvaldi Björnssyni, hamskera á Náttúrufræðistofnun.

Rannsóknir á dýrinu eru gerðar að hluta til í samvinnu við Dani sem unnið hafa um árabil að athugunum á hvítabjörnum á Grænlandi. Hauskúpa dýrsins og bein verða hreinsuð og varðveitt á Náttúrufræðistofnun Íslands.

Hér var á ferðinni ung birna, 173 cm löng. Hún var vigtuð nyrðra áður en feldurinn var tekinn og reyndist þá vera 138 kíló. Fyrirhugað er að ákvarða aldur dýrsins út frá fjölda árhringja í tannrótum en sé stærðin borin saman við mælingar á dýrum úr Austur-Grænlandsstofni hvítabjarna er ljóst að birnan sem hér um ræðir var þegar orðin sjálfstæð. Húnar lúta ekki forsjár móður nema um fyrstu 27 mánuði ævinnar. Þeir fæðast í híði að vetrarlagi, oftast í desember eða janúar. Líklegast er að Þistilfjarðarbirnan sé ríflega fjögurra ára (49 mánaða) en upplýsingar um raunverulegan aldur verða kynntar þegar búið er að telja árhringi í tannrótum dýrsins.

Nokkur fita var undir húðinni, einkum á lend, kviði og innanverðum lærum en nær engin fita var í kviðarholi. Krufning leiddi ekkert óeðlilegt í ljós og benti til að birnan hafi verið heilbrigð þegar hún var felld.

Dýrið hafði ekki étið daginn áður en það var fellt því engar fæðuleifar voru til staðar í meltingarvegi. Birnan hafði þó slökkt þorstan því litlir krabbar sem lifa í ferskvatni fundust í iðrum ásamt nokkrum sinustráum og nokkrum blöðum af krækilyngi.

Fyrstu niðurstöður benda til þess að birnan hafi ekki verið smituð af tríkínum en fyrirhugað er að rannsaka það nánar á Tilraunastöðinni á Keldum auk þess sem leitað verður að öðrum sníkjudýrum.

Tilraunastöðinni á Keldum 01. febrúar 2010

Karl Skírnisson, dýrafræðingur

karlsk@hi.is

Tíu ára afmæli Náttúrustofu Norðurlands vestra
Náttúrustofa Norðurlands vestra var stofnsett í febrúar árið 2000 og fagnar 10 ára afmæli sínu í dag. Náttúrustofan er til húsa að Aðalgötu 2 á Sauðárkróki, í „gamla barnaskólanum“ og var húsið sérstaklega gert upp fyrir starfsemi stofunnar á sínum tíma. Dr. Þorsteinn Sæmundsson jarðfræðingur hefur gegnt starfi forstöðumanns stofunnar frá upphafi, auk þess sem við stofuna starfa Þórdís V. Bragadóttir líffræðingur og Helgi Páll Jónsson, jarðfræðingur.

Nánar um Náttúrustofu Norðurlands vestra, sögu hennar og hlutverk