Fimmtudaginn 28. janúar nk. kl 12:15-12:45 flytur Rán Þórarinsdóttir, líffræðingur á Náttúrustofu Austurlands, erindi sitt um gerð og samsetningu æðarfuglaungahópa. Erindinu verður varpað vítt og breitt um landið. Á Sauðárkróki er hægt að fylgjast með erindinu í fjarfundarherbergi Farskóla Norðurlands vestra við Faxatorg. Allir velkomnir.
