Milli jóla og nýárs fór fram hin árlega vetrarfuglatalning náttúrufræðistofnunar um land allt. Í Skagafirði fara talningarnar fram á 5 svæðum. Strandlengjuni frá ósum Gönguskarðsár og að Kolkuós er skipt niður í 4 svæði og eitt svæði er í Varmahlíð. Þetta árið sáust í allt 2271 fuglar af 16 tegundum. Mest sást af æðarfugl, 1523 fuglar en aðrar tegundir sem sáust voru: dílaskarfur, stokkönd, duggönd, hávella, straumönd, toppönd, sendlingur, silfurmáfur, svartbakur, hvítmáfur, bjartmáfur, rita, snjótittlingur, auðnutittlingur og hrafn. Talningarmenn og konur í Skagafirði voru Þórdís V. Bragadóttir, Kári Gunnarsson, Helgi Thorarensen, Guðrún Helgadóttir, Broddi Reyr Hansen, Bjarni K. Kristjánsson, Dan Govoni og Catherine Chambers.
Þeir sem vilja fræðast nánar um talningarnar og niðurstöður þeirra er bent á heimasíðu vetrarfuglatalningarinnar á vefsíðu Náttúrufræðistofnunar Íslands á slóðinni http://www.ni.is/dyralif/fuglar/vetrarfuglar/
