Farfuglarnir hafa verið að flykkjast til landsins seinustu daga og er orðið vorlegt um að lítast í Skagafirði. Hópar af álftum, grágæsum, heiðargæsum og helsingjum er orðin algeng sjón á túnum og ökrum bænda. Á vötnunum er einnig farið að kvikna líf en varpfuglar flykkjast á varpstöðvar sínar þessa dagana eftir að ísa leysti.
Þann 13. apríl fór starfsmaður náttúrustofunar í vettvangsferð um innanverðan Skagafjörð og Hjaltadal til að svipast um eftir fuglum. Álftir voru víða komnar á óðöl sín auk þess sem stokkendur, rauðhöfðar, skúfendur og toppendur eru farnar að flytja sig yfir á vötnin. Flórgoðar sáust jafnframt á einu vatninu. Hettumáfar og stormáfar sáust víða á áreyrum og ökrum auk þess sem sílamáfar sáust á flugi. Þá er nokkuð síðan fýllinn settist upp. Heiðlóuhópur flögraði um Langholtið og tjaldapar spókaði sig um eyrar Héraðsvatna í Blönduhlíðinni. Þá fréttist af haferni á flugi yfir Flatatungu og Silfrastaði þennan sama dag.
Á sama tíma fóru fram talningar á helsingjum. Sáust yfir 5 þúsund fuglar í innanverðum Skagafirði og Hjaltadal. Þegar mest var vorið 2009 sáust hátt í 21 þúsund fuglar á sama svæði þann 25. apríl. Fuglunum á því eftir að fjölga ört næstu daga. Kemur náttúrustofan til með að fylgjast með fjölda helsingja í innanverðum Skagafirði reglulega yfir þann tíma sem þeir stoppa.
