
Kría
Það er ekki laust við að rómantíkin svífi yfir vötnum þessa dagana enda vor í lofti. Víða sést til fugla af hinum ýmsu tegundum í hefðbundum vorverkum sem felast að mestu í því að sýna sig fyrir hinu kyninu, undirbúa hreiðurgerð og landamæravörslu. Flest allir farfuglarnir eru komnir til landsins og vantar bara óðinshana í Skagafjörðinn.
Aðstæður til fuglaskoðunar eru með besta móti þessa dagana. Vaðfuglar sjást víða í hópum á leirum og öðrum svæðum sem henta til fæðuöflunar og andapör eru víða í skurðum og smátjörnum við vegi. Andapörum hefur jafnframt fjölgað á vötnum. Tiltölulega auðvelt er að greina endur til tegundar á þessum árstíma þar sem pörin eru saman og steggirnir áberandi í varpbúningi. Fer nú að styttast í að fyrstu kollurnar hefji varp. Við höfnina hefur verið hægt að sjá ýmsar máfategundir, ritu, æðarfugl, hávellu og teistu seinnustu daga. Þá er krían orðin áberandi yfir Borgarsandinum og við Garðsvatn þegar hún flýgur til hafs til fæðuöflunar.

Brandönd á flugi
Nemendur í ferðamálafræði við Háskólann á Hólum voru í vettvangsferð um innanverðann Skagafjörð síðastliðin sunnudag og fékk starfsmaður náttúrustofunar að fljóta með. Sáust hátt í 40 tegundir fugla, bæði land og sjófuglar auk þess sem einn hvalur skaut upp kollinum. Var um smáhveli að ræða, líklegast hnýðing, sem sást skammt frá landi við Sauðárkrók.
Ýmsir flækingsfuglar hafa einnig verið að sjást seinnustu daga. Þannig sáust kanadagæs og margæs með helsingjum síðastliðin föstudag í innanverðum Skagafirði auk þess sem brandandarkolla hefur sést í nágrenni Sauðárkróks. Fréttir bárust einnig af vepju í Fljótunum.
Helsingjar sjást enn á túnum sem og heiðargæsir. Í seinnustu frétt var talað um að nú ætti fuglunum að fara að fækka, miðað við reynslu seinnustu ára, en greinilegt er að þeir hafi ekki lesið þá frétt því þeim fjölgaði milli talninga. Þann 7. maí sáust því yfir 20 þúsund fuglar og hafði þeim fjölgað um ca 1500 frá 2. maí. Næsta talning er ráðgerð 12. maí og verður forvitnilegt að sjá hvaða breytingar hafi átt sér stað á fjölda fuglana.

Margæs með helsingjum