Náttúrustofa Norðurlands vestra Rotating Header Image

Náttúrustofan

Náttúrustofa Norðurlands vestra tók til starfa á Sauðárkróki í febrúar árið 2000, en þá hafði undirbúningur að stofnun hennar staðið í um tveggja ára skeið. Stofan er stofnsett samkvæmt lögum um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur og reglugerð um Náttúrustofu Norðurlands vestra. Náttúrustofa Norðurlands vestra er til húsa að Aðalgötu 2, eða í “Gamla Barnaskólanum” sem byggður var árið 1908. Lokið var við endurbyggingu hússins í upprunalegum stíl árið 2000 og er það mikil bæjarbrýði í miðbæ Sauðárkróks. Þann 9. maí árið 2000, opnaði Siv Friðleifsdóttir þáverandi Umhverfisráðherra stofuna formlega að viðstöddu fjölmenni. Náttúrustofa Norðurlands vestra var fimmta náttúrustofan sem stofnsett er hér á landi, en í dag eru þær orðnar sjö staðsettar víðsvegar um landið, í Neskaupstað fyrir Austurland, í Vestmannaeyjum fyrir Suðurland, í Bolungarvík fyrir Vestfirði, í Stykkishólmi fyrir Vesturland, í Sandgerði fyrir Suðvesturland og á Húsavík fyrir Norðausturland.

Hús Náttúrustofu Norðurlands vestra

Hús Náttúrustofu Norðurlands vestra, Aðalgata 2 á Sauðárkróki.

Núverandi stjórn Náttúrustofu Norðurlands vestra skipa:

Svanhildur Guðmundsdóttir, formaður
Elínborg Hilmarsdóttir, ritari
Sigríður Björnsdóttir, stjórnarmeðlimur