Fuglaskoðun
Fuglaskoðun í Skagafirði
Náttúrustofa Norðurlands vestra hefur staðið fyrir uppsetningu fuglaskilta í Skagafirði. Skiltin eru staðsett við Áshildarholtsvatn, við tjarnir við Alexandersflugvöll, við Garðsvatn í Hegranesi og í grennd við bæinn Keldudal við sunnanvert Hegranes. Á öllum þessum svæðum er mikið og fjölbreytt fuglalíf og er nánari lýsingu á svæðunum að finna hér að neðan.
Áshildarholtsvatn
Við Áshildarholtsvatn er að finna einstakt fuglalíf sem vert er að skoða. Vatnið og bakkar þess eru friðaðir. Það voru ábúendur við vatnið sem sameinuðust um friðunina sem hefur skilað sér í fjölbreyttu fuglalífi.
Tegundir sem sjá má við Áshildarholtsvatn:
Flórgoði, hrossagaukur, rauðhöfði, jaðrakan, stokkönd, skúfönd, gargönd, urtönd, duggönd, álft, grágæs
Tjarnir við flugvöll
Á tjörnunum við Alexandersflögvöll, sem eru að hluta til manngerðar, hafa sést margar tegundir fugla. Sýna þessar tjarnir fjölbreytta flóru fuglalífsins í Skagafirði.
Tegundir sem sjást á tjörnunum:
Lóuþræll, kría, rauðhöfði, jaðrakan, stokkönd, skúfönd, gargönd, urtönd, duggönd, stelkur, óðinshani, stormmáfur.
Sunnanvert Hegranes
Fuglalíf á sunnanverðu Hegranesi er mikið og fjölbreytt. Ýmsar tegundir fugla er að finna þar. Svæðið bíður upp á mikla möguleika hvað varðar fuglaskoðun og útiveru.
Tegundir sem sjást við sunnanvert Hegranes:
Himbrimi, lómur, fýll, helsingi, grágæs, heiðagæs, álft, stokkönd, urtönd, rauðhöfðaönd, duggönd, skúfönd.
Garðsvatn
Garðsvatn tilheyrir Austara-Eylendi Skagafjarðar. Svæðið hentar einkar vel til fuglaskoðunar en mikið og fjölbreytt fuglalíf er við vatnið. Góður útsýnisstaður er af bílastæði rétt ofan við vatnið.
Tegundir sem sjást við Garðsvatn:
Flórgoði, óðinshani, rauðhöfði, hettumáfur, stokkönd, skúfönd, toppönd, urtönd, duggönd, himbrimi, álft, grágæs.
Helstu fuglategundir í Skagafirði

Álft (Cygnus cygnus). Mynd: Wikimedia Commons

Kría (Sterna paradisaea). Mynd: Wikimedia Commons

Lóuþræll (Calidris alpina). Mynd: Wikimedia Commons

Urtönd (Anas crecca). Mynd: Wikimedia Commons

Stokkönd (Anas platyrhynchos). Mynd: Wikimedia Commons

Skúfönd (Aythya fuligula). Mynd: Wikimedia Commons

Rauðhöfðaönd (Anas penelope). Mynd: Wikimedia Commons

Jaðrakan (Limosa limosa). Mynd: Wikimedia Commons

Hrossagaukur (Gallinago gallinago). Mynd: Wikimedia Commons

Grágæs (Anser anser). Mynd: Wikimedia Commons

Óðinshani (Phalaropus lobatus). Mynd: Wikimedia Commons

Duggönd (Aythya marila). Mynd: Wikimedia Commons

Stelkur (Tringa totanus). Mynd: Wikimedia Commons