Náttúrustofa Norðurlands vestra Rotating Header Image

Fuglafréttir

Farfuglarnir hafa verið að flykkjast til landsins seinustu daga og er orðið vorlegt um að lítast í Skagafirði. Hópar af álftum, grágæsum, heiðargæsum og helsingjum er orðin algeng sjón á túnum og ökrum bænda. Á vötnunum er einnig farið að kvikna líf en varpfuglar flykkjast á varpstöðvar sínar þessa dagana eftir að ísa leysti.

Þann 13. apríl fór starfsmaður náttúrustofunar í vettvangsferð um innanverðan Skagafjörð og Hjaltadal til að svipast um eftir fuglum. Álftir voru víða komnar á óðöl sín auk þess sem stokkendur, rauðhöfðar, skúfendur og toppendur eru farnar að flytja sig yfir á vötnin. Flórgoðar sáust jafnframt á einu vatninu. Hettumáfar og stormáfar sáust víða á áreyrum og ökrum auk þess sem sílamáfar sáust á flugi. Þá er nokkuð síðan fýllinn settist upp. Heiðlóuhópur flögraði um Langholtið og tjaldapar spókaði sig um eyrar Héraðsvatna í Blönduhlíðinni. Þá fréttist af haferni á flugi yfir Flatatungu og Silfrastaði þennan sama dag.

Á sama tíma fóru fram talningar á helsingjum. Sáust yfir 5 þúsund fuglar í innanverðum Skagafirði og Hjaltadal. Þegar mest var vorið 2009 sáust hátt í 21 þúsund fuglar á sama svæði þann 25. apríl. Fuglunum á því eftir að fjölga ört næstu daga. Kemur náttúrustofan til með að fylgjast með fjölda helsingja í innanverðum Skagafirði reglulega yfir þann tíma sem þeir stoppa.

DSC_0108

Húnvetnsk náttúra 2010

nnv-selasetur

Fræðsludagur um náttúrufar Húnavatnssýslna verður haldinn á Gauksmýri á vegum Náttúrustofu Norðurlands vestra og Selaseturs Íslands laugardaginn 10. apríl næstkomandi.

Skúli Þórðarson sveitarstjóri Húnaþings vestra mun setja fræðsludaginn og Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra mun að því loknu flytja gestum ávarp. Í kjölfarið hefst fyrirlestraröð sem mun standa yfir daginn. Þar verður komið víða við á ýmsum sviðum er lúta að náttúrufari Húnvatnssýslna.

Fyrirlestrar verða stuttir (15 mín. hver) og verður kaffisopinn aldrei langt undan.

Fyrirlestrar verða haldnir að Gauksmýri í Línakradal í Húnaþingi vestra. Að fyrirlestrahaldi loknu verður boðið upp á veitingar í boði Selaseturs Íslands og Náttúrustofu Norðurlands vestra í húsnæði Selaseturs Íslands Brekkugötu 2, Hvammstanga og fimm ára afmælis Selasetursins og 10 ára afmæli Náttúrustofu Norðurlands vestra verður fagnað.

Formleg dagskrá fræðsludagsins hefst kl. 9:30 og lýkur kl. 17:00
Athugið að þátttakendum verður boðið upp á súpu í matarhléi þeim að kostnaðarlausu. Við viljum biðja þá sem það vilja þiggja að senda tilkynningu á netfangið steini@nnv.is eða hringja í síma 453-7999.

Viðburðinn styrkja sveitarfélög í Húnavatnssýslum, SSNV, Vörumiðlun, Léttitækni, Sláturhús SKVH, Landsvirkjun og Vaxtarsamningur Norðurlands vestra.

Dagskráin

Ágripahefti (pdf skjal, 8 MB)

Fræðsluerindi náttúrustofanna þann 25. mars

Fimmtudaginn 25. mars n.k. flytur Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir líffræðingur á Rannsóknarsetri Háskóla Íslands á Vestfjörðum erindi sitt:

„Uppeldisstöðvar þorskseiða“

Á Sauðárkróki má fylgjast með erindinu í fjarfundarherbergi Farskóla Norðurlands vestra við Faxatorg.

Næsta fræðsluerindi kemur svo frá Náttúrustofu Reykjaness fimmtudaginn 29. apríl 2010.

web-NAVE-25.mars 2010-1

Kynningarveggspjald erindis