Náttúrustofa Norðurlands vestra Rotating Header Image

Bein steypireyðar varðveitt

Ákveðið hefur verið að varðveita bein steypireyðarinnar sem rak á land nýverið við eyðibýlið Ásbúðir á Skaga.

Steypireyður sem rak á land á Skaga nýverið. Myndin er af vef Umhverfisráðuneytisins og er eftir Þorvald Björnsson

Steypireyður sem rak á land á Skaga nýverið. Myndin er af vef Umhverfisráðuneytisins og er eftir Þorvald Björnsson

Tillaga umhverfisráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra þess efnis var samþykkt á fundi ríkisstjórnarinnar í gær og verður tveimur milljónum króna varið til að ná beinagrind hvalsins og verka hana til geymslu hjá Náttúrufræðistofnun Íslands.

Hvalreki sem þessi er sjaldgæfur við strendur Íslands en Steypireyður er stærsta þekkta dýr jarðar og alfriðað frá árinu 1966.

Hér fyrir neðan er fróðlegur tengill á myndband sem sýnir hvernig bein steypireyðar eru sett saman í náttúrugripasafni í Kanada.

Beinagrind steypireyðar sett saman

Frekari fróðleik um steypireyði er að finna á vísindavef Háskóla Íslands.

Hvað eru margir steypireyðar til í heiminum?

Hvaða dýr étur mest?

Fuglaskoðun og flækingsfuglafréttir

Kría

Kría

Það er ekki laust við að rómantíkin svífi yfir vötnum þessa dagana enda vor í lofti. Víða sést til fugla af hinum ýmsu tegundum í hefðbundum vorverkum sem felast að mestu í því að sýna sig fyrir hinu kyninu, undirbúa hreiðurgerð og landamæravörslu. Flest allir farfuglarnir eru komnir til landsins og vantar bara óðinshana í Skagafjörðinn.

Aðstæður til fuglaskoðunar eru með besta móti þessa dagana.  Vaðfuglar sjást víða í hópum á leirum og öðrum svæðum sem henta til fæðuöflunar og andapör eru víða í skurðum og smátjörnum við vegi. Andapörum hefur jafnframt fjölgað á vötnum. Tiltölulega auðvelt er að greina endur til tegundar á þessum árstíma þar sem pörin eru saman og steggirnir áberandi í varpbúningi. Fer nú að styttast í að fyrstu kollurnar hefji varp. Við höfnina hefur verið hægt að sjá ýmsar máfategundir, ritu, æðarfugl, hávellu og teistu seinnustu daga. Þá er krían orðin áberandi yfir Borgarsandinum og við Garðsvatn þegar hún flýgur til hafs til fæðuöflunar.

Brandönd á flugi

Brandönd á flugi

Nemendur í ferðamálafræði við Háskólann á Hólum voru í vettvangsferð um innanverðann Skagafjörð síðastliðin sunnudag og fékk starfsmaður náttúrustofunar að fljóta með. Sáust hátt í 40 tegundir fugla, bæði land og sjófuglar auk þess sem einn hvalur skaut upp kollinum. Var um smáhveli að ræða, líklegast hnýðing, sem sást skammt frá landi við Sauðárkrók.

Ýmsir flækingsfuglar hafa einnig verið að sjást seinnustu daga. Þannig sáust kanadagæs og margæs með helsingjum síðastliðin föstudag í innanverðum Skagafirði auk þess sem brandandarkolla hefur sést í nágrenni Sauðárkróks. Fréttir bárust einnig af vepju í Fljótunum.

Helsingjar sjást enn á túnum sem og heiðargæsir. Í seinnustu frétt var talað um að nú ætti fuglunum að fara að fækka, miðað við reynslu seinnustu ára, en greinilegt er að þeir hafi ekki lesið þá frétt því þeim fjölgaði milli talninga. Þann 7. maí sáust því yfir 20 þúsund fuglar og hafði þeim fjölgað um  ca 1500 frá 2. maí. Næsta talning er ráðgerð 12. maí og verður forvitnilegt að sjá hvaða breytingar hafi átt sér stað á fjölda fuglana.

Margæs með helsingjum

Margæs með helsingjum

Varp er hafið

DSC_0168-1

Álft á hreiðri

Það hefur sjálfsagt ekki farið fram hjá neinum undanfarna daga að sumarið er komið. Hitamælirinn sýnir rautt, grasið er byrjað að grænka, hunangsflugurnar eru komnar á kreik og fuglasöngur ómar frá morgni til kvölds.

Starfsmaður náttúrustofunar hefur verið víða á ferðinni undanfarnar vikur við helsingja­talninga en talið er á ca 5 daga fresti í innanverðum Skagafirði og í Hjaltadalnum. Hefur hann því haft gott tækifæri til að skoða þær breytingar sem orðið hafa á fuglalífi svæðisins að undanförnu.

Heiðlóum og stelkum hefur farið ört fjölgandi seinnustu daga auk þess sem víða heyrist í hneggjandi hrossagaukum. Hópar af jaðrakönum hafa jafnframt sést víða.

Fyrstu álftirnar eru lagstar á og ættu ungar úr þeim hreiðrum að líta dagsins ljós um mánaðarmótin maí/júní. Rjúpnakarrar eru komnir á varpstöðvar sínar og farnir að verja óðöl sín af hörku. Eru þeir vel sýnilegir þessa dagana, snemma á morgnana og á kvöldin, þar sem þeir hafa komið sér fyrir á girðinga­staurum og öðrum stöðum þar sem útsýnið er gott svo þeir hafi góða yfirsýn yfir sín svæði. Skera þeir sig vel úr landslaginu enda enn í hvítum vetrarbúningi.

Heiðargæsir og grágæsir eru enn víða á túnum  en fer fækkandi. Helsingjum fjölgaði jafnt og þétt eftir því sem leið á aprílmánuðinn en þann 2. maí sáust 18.621 fuglar. Næstu daga kemur þeim til með að fækka ört og ættu flestir fuglarnir að hafa yfirgefið landið um miðjan maí.

Krían er komin til landsins og er hún farin dreifast um landið. Er hún meðal annars komin í Eyjafjörðinn en við á náttúrustofuni höfum en engar fréttir fengið af henni hér í Skagafirði og Húnavatnssýslunum. Væri gaman að fá fréttir af komutíma hennar hingað á norðurlandi vestra.