Ný grein um fæðu og fæðusérhæfingu hornsíla í Mývatni

Núna í lok apríl birtist greinin Spatial variation and individual specialization of stickleback diet in relation to trophic morphology eftir Rögnu Guðrúnu Snorradóttur. Greinin byggir á meistaraverkefni Rögnu, sem hún lauk í sjávar- og vatnalíffræði frá Háskólanum á Hólum. Greinin er hluti af sérstöku riti um Mývatn í tímaritinu Aquatic Ecology (Special issue in Aquatic Ecology – The biology of Lake Mývatn and its surrounding areas -  https://link.springer.com/collections/figagjhhha).  

Greinin fjallar um hvernig fæða og fæðusérhæfing hornsíla (Gasterosteus aculeatus) í Mývatni breytist eftir búsvæðum og hvort það tengist útlitseinkennum þeirra. Niðurstöðurnar sýna að bæði fæða og fæðuformgerð eru breytileg milli búsvæða, sem gæti endurspeglað mismunandi fæðuframboð. Einnig kom í ljós að stærri fiskar neyta annars konar fæðu en smærri og að ákveðin líkams- og höfuðeinkenni tengjast mismunandi fæðuvali. Gögnin sýndu að hornsíli voru almennt ósérhæfð í fæðuvali, en fiskar í heitari búsvæðum sýndu meiri fæðusérhæfingu en fiskar í öðrum búsvæðum.  

Niðurstöðurnar benda því til að breytileiki sé í fæðuvali og sérhæfingu hornsíla í Mývatni eftir búsvæðum, þrátt fyrir að stofninn hafi almennt ósérhæft fæðuval og sýni takmarkaðan erfðafræðilegan mun milli búsvæða.