Sumarstarf hjá NNv

Náttúrustofa Norðurlands vestra óskar eftir að ráða sumarstarfsmann í fullt starf. Um er að ræða 3-4 mánaða starf sem felur í sér vettvangs-vinnu við gagnaöflun auk skrifstofuvinnu við úrvinnslu gagna og framsetningu þeirra. Starfið er á Sauðárkróki þar sem náttúrustofan er með höfuðstöðvar. Við NNv starfa nú 4 starfsmenn á ársgrundvelli auk sumarstarfsmanna. NNv stundar rannsóknir á náttúrufari Norðurlands vestra, bæði á eigin vegum og í samstarfi við aðra. Verksvið NNv spannar breitt svið innan náttúrufræðinnar en til staðar er m.a. sérþekking á fléttum, fiskum og sjávarlíffræði.  

Laun eru skv. stofnanasamningi Náttúrustofu Norðurlands vestra og Félags íslenskra náttúrufræðinga. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í maí 2026. 

 

Menntunar- og hæfniskröfur

-stúdentspróf æskilegt, framhaldsskólanemi kemur einnig til greina 

-almenn þekking og áhugi á náttúru landsins er æskileg 

-skipulögð vinnubrögð og þrautseigja 

-vilji og geta til þátttöku í vettvangsferðum fjarri heimili 

-samviskusemi, frumkvæði og metnaður til að sýna árangur 

-bílpróf, helst á beinskiptan bíl 

-færni í mannlegum samskiptum 

-góð íslensku- og enskukunnátta 

 

Umsókn má fylgja ferilskrá og tilvísun til meðmælanda. 

Umsókn sendist á netfangið: nnv@nnv.is fyrir 1. mars 2026 en opið verður fyrir umsóknir þar til ráðið hefur verið í starfið. 

Nánari upplýsingar veitir Starri Heiðmarsson, forstöðumaður (s: 6632650; starri@nnv.is)