Sumarstörf í boði fyrir tvo háskólanema hjá BioPol og NNV

BioPol, í samstarfi við Náttúrustofu Norðurlands vestra, óskar eftir að ráða tvo háskólanema (í grunn- eða meistaranámi í raunvísindum) til að smíða umhverfismæla fyrir sjávarrannsóknir. Verkefnið verður unnið eftir fyrirmynd „OpenCDT“ með ákveðnum breytingum sem umsækjendur munu þurfa að hanna sjálfir. Mikilvægt er að umsækjendur  geti forritað. Starfsstöð umsækjenda verður á Skagaströnd. Verkefnið er styrkt af Nýsköpunarsjóði Stúdenta. Nánar um verkefnið má sjá hér.

Hæfniskröfur:

  • Samviskusemi
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Tölvukunnátta

Umsóknarfrestur er til og með 10. maí nk. Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og meðmælendur berist BioPol ehf.,  Einbúastíg 2, 545 Skagaströnd eða valtyr@biopol.isog halldor@biopol.is.

Nánari upplýsingar veitir Valtýr Sigurðssonvaltyr@biopol.iseða í