Hvítabirnir í Skagafirði árið 2008
Nánari upplýsingar |
Titill |
Hvítabirnir í Skagafirði árið 2008 |
Lýsing |
Í júnímánuði árið 2008 gengu tveir hvítabirnir á land í Skagafirði. Sá fyrri sást fyrst við Miðmundarfjall við Þverárfjallsveg þann 3. júní og sá síðari þann 16. júní við bæinn Hraun II á utanverðum Skaga. Eins og gefur að skilja vöktu þessar heimsóknir mikla athygli bæði innanlands og utan, kannski ekki síst vegna þess að bæði dýrin voru felld. Rétt um 20 ár voru síðan hvítabjörn gekk síðast á land á Íslandi og var það í Haganesvík í Fljótum í Skagafirði. Örlög hans urðu þau sömu og hvítabjarnanna nú. Í þessu greinarkorni er leitast við að varpa ljósi á þá atburðarás sem átti sér stað þegar dýrin gengu á land og viðbrögð heimamanna og yfirvalda. Í lokin er fjallað um ástand dýranna og gerð grein fyrir niðurstöðum vinnuhóps sem umhverfisráðherra skipaði til að semja tillögur um viðbrögð við landtöku hvítabjarna á Íslandi. |
Hlekkur |
https://timarit.is/page/6468256?iabr=on |
Höfundar |
Nafn |
Þorsteinn Sæmundsson |
Flokkun |
Flokkur |
Annað |
Útgáfuár |
2009 |
Útgefandi |
Hið íslenska náttúrufræðifélag |