| Nánari upplýsingar | |
|---|---|
| Titill | Fuglalíf í friðlandinu við Miklavatn 2003 |
| Lýsing | Dagana 10. til 13. júní 2003 var fuglalíf við Miklavatn í Skagafirði kannað. Talið var á vötnum og tjörnum í og við friðlandið og metinn fjöldi mófugla á Borgarskógum. Beitt var svipuðum aðferðum og við úttekt á fuglalífi svæðisins í júní 1987 (sniðkortum), auk þess sem talningar fóru fram á sniðum til samanburðar. Gott samræmi var milli aðferðanna tveggja, en mælingar árið 2003 gáfu að jafnaði tvöfalt hærri þéttleika mófugla en árið 1987. Þessi aukning felst að líkindum fyrst og fremst í mun á aðferðum og því er beinn samanburður milli ára varasamur. Hlutfallsleg breyting á algengni einstakra tegunda gefur þó vísbendingar ; spói var sem fyrr algengasta tegundin, heiðlóu og lóuþræl hefur fjölgað talsvert og þúfutittlingur sem var mjög fáliðaður 1987 var algengur 2003. Óðinshana virðist hafa fækkað. Hettumáfum heldur áfram að fækka í friðlandinu en þar var mjög stórt varp 1974. Fáar endur og gæsir fundust verpandi 2003 samanborið við 1987. Líklegasta skýringin á því er nærvera refs, en fersk ummerki eftir refi sáust víða í Borgarskógum. |
| Skráarviðhengi | Ná í viðhengi |
| Höfundar | |
|---|---|
| Nafn | Guðmundur A. Guðmundsson |
| Flokkun | |
|---|---|
| Flokkur | Skýrslur |
| Útgáfurit | NNv-2006002 |
| Útgáfuár | 2006 |
| Útgefandi | Náttúrustofa Norðurlands vestra |
Náttúrustofa Norðurlands Vestra
Aðalgötu 2 / 550 Sauðárkróki / S. 453 7999 / Kt. 581298-3909