3. nóvember 2026

Hvalreki á Borgarsandi, Sauðárkóki

Þann 1. nóvember síðastliðinn varð vart við hvalreka á Borgarsandi við Sauðárkrók. Um var að ræða marsvín eða grindhval (Globicephala melas). Starfsfólk Náttúrustofunnar ásamt starfsfólki frá MAST fór í framhaldi að rannsaka dýrið sem reyndist vera um 543 sm langur tarfur. Ásamt því að mæla dýrið þá voru einnig tekin ýmis sýni, m.a. vöðvasýni, tennur, fita og auga sem send verða til frekari rannsóknar hjá Hafrannsóknarstofnun.
Myndir: Rakel Þorbjörnsdóttir