Staðbundnar rannsóknir og vöktun

Náttúrustofa Norðurlands vestra er þekkingar- og rannsóknasetur með höfuðstöðvar á Sauðárkróki.

Náttúrustofa Norðurlands vestra (NNv) er með aðsetur að Aðalgötu 2 á Sauðárkróki. Starfssvæði stofunnar nær frá Hrútafirði í vestri og austur á Tröllaskaga.

Náttúrustofan starfar samkvæmt lögum um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur (nr. 54/2024). Samkvæmt 11. gr. laganna eru meginverkefni náttúrustofa:

- Að safna gögnum, varðveita heimildir og stunda vísindalegar rannsóknir á náttúrufari, sérstaklega á starfssvæði stofunnar.

- Að stuðla að æskilegri landnýtingu og náttúruvernd og sjá um fræðslu um umhverfismál.

- Að veita náttúruverndarnefndum á starfssvæðinu upplýsingar og ráðgjöf

- Að veita ráðgjöf og sinna vöktunarverkefnum og rannsóknum í þágu sveitarfélaga, stofnana og fyrirtækja gegn greiðslu.

- Að stunda almenna vöktun náttúrufars á starfssvæðinu.

Saga

Náttúrustofa Norðurlands vestra tók til starfa í febrúar 2000 og var formlega opnuð þriðjudaginn 9. maí sama ár. Dr. Þorsteinn Sæmundsson jarðfræðingur var ráðinn fyrsti forstöðumaður stofunnar og hóf störf í ársbyrjun 2000, en þá var viðgerð á gamla skólahúsinu við Kirkjutorg, þar sem stofan er til húsa, að mestu lokið. Árið 2018 fékk stofan starfsaðstöðu á Skagaströnd og árið eftir á Hvammstanga.

Rekstur

Náttúrustofan er rekin í samstarfi ríkis og sveitarfélaga. Þrjú sveitarfélög á starfssvæðinu; Skagafjörður, Húnaþing vestra og Skagaströnd standa að rekstrinum ásamt ríkinu, sem greiðir meginhluta rekstrarkostnaðar en sveitarfélögin að lágmarki 30%, skipt hlutfallslega eftir íbúafjölda.


Samstarf

NNv er í virku samstarfi við fjölda stofnana, meðal annars Náttúrufræðistofnun (fugla- og mófuglatalningar, refahræ), Hafrannsóknastofnun (hvalreki, selarannsóknir), Land og skóg (Grólind, kolefnisbinding í mólendi), Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri (Orravatnsrústir), BioPol og Selasetur Íslands, auk þess að taka þátt í Samtökum náttúrustofa ásamt sjö öðrum náttúrustofum landsins.


Starfsfólk

Ragna Guðrún Snorradóttir

Ferskvatnslíffræðingur

ragnagudrun@nnv.is

6951792

Rakel Þorbjörnsdóttir

Náttúru- og umhverfisfræðingur, fiskeldisfræðingur

ragnagudrun@nnv.is

6951792

Starri Heiðmarsson

Forstöðumaður, Fléttufræðingur

ragnagudrun@nnv.is

6951792

Ritskrá

Valtýr Sigurðsson

Líffræðingur MSc

ragnagudrun@nnv.is

6951792

Erindi