Hvalnesbirnan

Kíktu við og skoðaðu uppstoppaðan hvítabjörn.

Hvítabirnir

Hvítabirnir eru stærstu landrándýr í heimi og lifa á hafís á norðurslóðum. Þeir eru snjallar veiðiklær og veiða aðallega seli. Stundum koma þeir yfir hafið til Íslands. Þá berast þeir á ísjökum sem brotna af íshellunni og fljóta með hafstraumum mörg hundruð kílómetra. Þegar þeir eru komnir nógu nálægt Íslandi til að þeir sjá til lands þá synda þeir síðasta spölinn en þeir eru miklir sundgarpar. Fyrsta heimild um slíka heimsókn er frá árinu 890. Hvítabirnir eru stórhættuleg dýr og þeir sem ganga á land eru því yfirleitt felldir af öryggisástæðum.

Hvalnesbirnan

Sumarið 2016 gekk hvítabirna á land á Hvalnesi á Skaga. Hún var á 12. ári og óvenju vel haldin, því um 30% af þyngd hennar var fita. Flestir birnir sem synda hingað eru hins vegar grindhoraðir eftir langa ferð. Krufning sýndi að hún hafði eignast húna nokkrum sinnum en líklega aðeins einu sinni komið þeim á legg. Í þetta sinn var hún með mjólk á spena og talið er að húnarnir, um sjö mánaða gamlir, hafi farist á leiðinni. Þeir geta ekki sogið móður sína á sundi. Í henni fannst sníkjudýr sem finnst ekki annars hér á landi, tríkínan, en Ísland er eitt fárra landa í heiminum sem er laust við hana.

Heimsókn á Náttúrustofuna

Hefur þú einhvern tímann staðið augliti til auglitis við hvítabjörn? Hjá Náttúrustofu Norðurlands vestra, Aðalgötu 2 á Sauðárkróki, er tekið á móti gestum á opnunartíma, og þar getur þú skoðað uppstoppaða Hvalnesbirnuna. Skrifstofan er venjulega opin milli klukkan 8 og 16. Þú getur séð hversu stórar loppurnar og klærnar eru og hversu sterkbyggt þetta dýr hefur verið. Kíktu við og spjallaðu við starfsfólkið því það veit margt um Hvalnesbirnuna og náttúruna á svæðinu.