Verkefni

Rannsóknir og vöktun á lífríki og náttúrufari svæðisins.

Fuglavöktun

Talningar á rjúpu, vatnafuglum, strandfuglum  og mófuglum í samstarfi við NÍ, auk skráningar á sjúkdómum og flækingsfuglum og fræðsla um fuglaskoðun.


Votlendi, jöklar og loftslagsvöktun

Vöktun á áhrifum hlýnandi veðurfars á gróður, jarðveg og jökulsvæði, m. a. gróður- og jarðvegsvöktun (Grólind), kolefnisbindingu í mólendi, breytingar á rústasvæðum (Orravatnsrústir) og gróðurframvindu á svæðum sem jöklar hafa hopað frá í samstarfi við Land og skóg og Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri.


Fléttur, plöntur og örverur

Náttúrustofan stundar rannsóknir á fléttum, mosum og tengdum örverusamfélögum, þar á meðal grunnrannsóknir á fléttuflóru Íslands og samstarfsverkefni um örveru- og sveppaflóru mosa og sýkla í fléttum.


Sjávar- og vatnadýr

Greining botndýra í sjó (meiofauna) þ. á. m. burstaorma, marflóa og skeldýra. Flokkun vatnshlota í gæðaflokka út frá þekktum stuðlum (NQI og AMBI). Rannsóknir á fæðuvistfræði og formfræði ferskvatnsfiska, svo sem hornsíla í Mývatni, auk eldri rannsókna á álum og bleikju.


Önnur verkefni

Kortlagning ágengra tegunda, t.d. lúpínu og skógarkerfils. Vistgerðaflokkun og umhverfismat vegna framkvæmda.


Fjölbreytt verkefni NNv

Starf Náttúrustofu Norðurlands vestra byggir á fjölbreyttum rannsóknum, vöktun og þjónustuverkefnum á sviði náttúrufræða, með áherslu á lífríki og náttúrufar Norðurlands vestra. Stofan sinnir bæði eigin grunnrannsóknum og langtímavöktun í samstarfi við innlendar og erlendar stofnanir, auk þess að taka að sér afmörkuð verkefni fyrir sveitarfélög og fyrirtæki. Verkefnin spanna meðal annars fugla- og fiskavöktun, gróður- og jarðvegsrannsóknir, sjávarlíffræði, fléttu- og örverurannsóknir og kortlagningu á umhverfisþáttum.


Niðurstöður rannsókna og vöktunar Náttúrustofu Norðurlands vestra nýtast við ákvarðanatöku um náttúruvernd, loftslagsmál og sjálfbæra nýtingu auðlinda, bæði hjá stjórnvöldum og sveitarfélögum ásamt atvinnulífinu á svæðinu. Stofan tekur auk þess þátt í alþjóðlegu samstarfi á fjölmörgum sviðum, svo sem vatna- og fiskalíffræði, loftslagsvöktun, mengunarrannsóknum og verndun sjávarspendýra og er virkur aðili í Samtökum náttúrustofa.