Náttúrustofa Norðurlands vestra í samstarfi við Land og Skóg hefur tekið að sér langtímaverkefnið Grólind fyrir landshlutann.
Þrír starfsmenn stofunnar fóru fyrr í vikunni að taka út fyrstu reitina.
Á vef Land og skógar kemur fram að Grólind snýst um mat og vöktun á gróður- og jarðvegsauðlindum um allt Ísland.
Á Norðurlandi vestra eru samtals um 250 reitir, þar sem hver reitur er 50x50 metri að stærð, en á öllu landinu eru 900 reitir. Tilgangur Grólindar verkefnisins er að öðlast betri skilning á ástandi gróðurs og jarðvegs um landið, sem og að fylgjast með breytingum