Fléttutal komið út!

Klettaglæða (Rusavskia elegans) á hraunnibbu í Surtsey.
Klettaglæða (Rusavskia elegans) á hraunnibbu í Surtsey.

Tékklisti yfir íslenskar fléttur og fléttuháða sveppi er kominn út. 

Í ritinu eru skráðar alls 838 tegundir fléttumyndandi sveppa og 144 tegundir fléttuháðra sveppa, auk afbrigða og undirtegunda. Listinn byggir á margra áratuga rannsóknum og söfnun Harðar Kristinssonar (1937–2023) og hefur verið uppfærður jafnt og þétt hjá Náttúrufræðistofnun. 

Ritið kemur út í ritröðinni „Fjölrit Náttúrufræðistofnunar“ og ber titilinn: „Sveppatal III: Fléttumyndandi og fléttuháðir sveppir,“. Listinn er eftir Hörð Kristinsson og Starra Heiðmarsson, og birtir heildstæðan listi yfir alla þekkta sveppi á Íslandi sem mynda fléttur eða eru fléttuháðir.

Hörður Kristinsson og Starri Heiðmarsson. (2025). Sveppatal III: fléttumyndandi og fléttuháðir sveppir. Fjölrit
Náttúrufræðistofnunar nr. 60. Náttúrufræðistofnun. DOI: 10.33112/1027-832X.60